Illugi Jökulsson minnist Auðar Haralds með fallegum orðum.
Margir minnast Auðar Haralds sem lést á dögunum enda vinamörg en einnig naut hún mikillar virðingar bókmenntastéttarinnar. Illugi Jökulsson fjölmiðlamaður og fyrrverandi samstarfsmaður Auðar á Talstöðinni, er einn þeirra sem minnist hennnar.
Illugi skrifaði nokkuð stutta en fallega færslu um Auði á Facebook. Þar segir hann Auði hafa verið hugrakka.
Færsluna fallegu má lesa hér fyrir neðan.
„Það var heilmikil opinberun að lesa Hvunndagshetjuna eftir Auði Haralds á sínum tíma, svo skemmtileg var hún en líka hárbeitt. Löngu seinna var Auður Haralds pistlahöfundur hjá mér á Talstöðinni sællar minningar og það var alltaf gaman að fá hana í heimsókn á stassjónina. Hún átti til að bera hetjulund, já, ég myndi nota það orð. Ég votta ástvinum hennar alla mína samúð.“