Illugi Jökulsson gagnrýnir ákvörðun borgarstjórans um lokun Borgarskjalasafns í nýrri Facebook-færslu.
Hinn orðheppni fjölmiðlamaður og rithöfundur, Illugi Jökulsson skrifaði færslu á Facebook þar sem hann hlekkjar á frétt Mbl um gagnrýni á þá ákvörðun Dags B. Eggertssonar að sameina Borgarskjalasafnið og Þjóðskjalasafnið. Segir Illugi skýrsluna sem lögð var fram til stuðnings ákvörðuninni, vera „mjög ófullkomið Excel-skjal“ sem snerti ekkert á tilgangi safnsins.
„Mér fannst ekkert endilega vond hugmynd í sjálfu sér að sameina Borgarskjalasafn og Þjóðskjalasafn ef það yrði til þess að bæta aðstöðu allra sem þurfa að rýna í gömul skjöl. En nú er ljóst orðið að skýrslan þessu til stuðnings var (mjög ófullkomið) Excel-skjal um peninga og rekstur, en ekki hugað að tilgangi safnanna. Rétt er að leggja þessa tillögu á hilluna í Borgarskjalasafninu og láta hana rykfalla þar.“