Inga Sæland hefur legið flöt með Covid-19 veiruna frá því á aðfangadag.
Haustið og veturinn hefur verið mikill pestatími á Íslandi, líkt og alltaf og er ljóst að Covid-19 veiran lifir enn góðu lífi meðal okkar þó fyrir flestum sé hún orðin eins og hver önnur flensa. Inga Sæland segist í nýrri Facebook-færslu hafa verið með Covid frá því á aðfangadag en eiginmaður hennar er með undirliggjandi sjúkdóm, þannig að hún þarf að fara varlega.
„Búin að liggja bakk síðan á aðfangadag. Ljóta óværan þetta sem flæðir nú yfir sem aldrei fyrr,“ skrifaði hin skelegga þingkona Flokks fólksins og birti eftirfarandi ljósmynd með.
Mannlíf sendir Ingu batakveðjur.