Inga Sæland segist ekki viss hvort hún myndi vilja í samstarf með Sjálfstæðisflokknum og Framsókn ef ske kynni að Vinstri grænum yrði bolað út úr ríkisstjórninni.
„Þessi staða kæmi tæplega upp, það er Katrín sem er með stjórnarumboðið,“ sagði Inga Sæland, formaður Flokks fólksins við Mannlíf, aðspurð hvernig hún myndi taka í það ef Sjálfstæðisflokkurinn leitaði til flokksins um myndun nýrrar ríkisstjórnar. Bætti hún svo við: „Það er eitthvað undarlegt að gerast þarna um borð. En hvort við séum til í tangó, það veit ég hins vegar ekkert um að svo stöddu.“