Samkvæmt heimildum Mannlífs er það Ingólfur Kjartansson sem situr í gæsluvarðhaldi, grunaður um að hafa skotið annan mann við Ingólfsstræti um helgina. Hann er fæddur árið 2002 og á að baki sér glæpaferil en hann losnaði úr fangelsi í byrjun febrúar þar sem hann sat inni fyrir nokkur rán. Ingólfur leggur einnig stund á listsköpun, til dæmis tónlist og myndlist en byrjaði ungur í neyslu fíkniefna.
Hann hefur gert tilraunir til að losna undan oki fíkniefnanna en það hefur ekki tekist.
Samkvæmt heimildum Mannlífs er árásin talin tengjast erjum á milli tveggja hópa og er sögð tengjast atburði í fyrra þar sem karlmaður um þrítugt veitti öðrum manni fjölmarga stunguáverka á veitingastaðnum Sushi Social í apríl síðastliðnum.
Leiðrétting: Í fyrstu var talið að Ingólfur tengdist máli þar sem maður kom vopnaður skotvopni inn á Samhjálp, svo reyndist ekki vera og beðist er velvirðingar á þeirri rangfærslu.