„Kæru viðskiptavinir. Í ljósi aðstæðna teljum við að landinn sé ekki alveg tilbúinn í Danska daga svo við höfum ákveðið að fresta þeim um óákveðin tíma.
Nánari tilkynning kemur síðar í takt við líðan þjóðarinnar.“
Er þetta yfirlýsing á Facebook síðu Hagkaupa í dag og frestunin af skiljanlegum ástæðum.
Danir töpuðu fyrir Frökkum á EM í handbolta í gærkvöld og varð þar með draumur Íslendinga um undanúrslit úr sögunni.
Reiði landans á Twitter í gær leyndi sér ekki og lögðu margir til að leggja niður dönskukennslu í skólum vegna tapsins.
Þá sögðust margir aldrei ætla til Danmerkur aftur og undirstrikuðu að það væri „ALDREI hægt að treysta á þessa Dani“.
Danskir dagar hefur lengi verið hefð hjá Hagkaup en ekki liggur fyrir hvenær þeir verða næst.