Föstudagur 4. október, 2024
6.8 C
Reykjavik

Einar Óli Einarsson er horfinn á Spáni: „Hann gat varla staðið, er fótafúinn og annað“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Einar Óli Einarsson var fluttur á háskólasjúkrahúsið í Torrevieja á Spáni í fyrradag en skömmu síðar hvarf hann þaðan. Síðan þá hefur ekkert til hans spurst.

Ármann Thor, náinn vinur Einars Óla, segir í samtali við DV að honum finnist málið óskiljanlegt og að hann geri allt sem í valdi hann stendur til að finna Einar Óla. Hefur hann nú auglýst eftir honum á samfélagsmiðlum, meðal annars í Facebook-hópnum Íslendingar á Spáni. „Ég bý á Spáni og er búinn að vera hér í átta ár. Þetta er óskiljanlegt. Ég er góður vinur hans, hef séð um húsið hans og þess háttar en hann á hús í Quesada,“ segir Ármann, en Quesada er lítill nágrannabær Torrevieja. Einar var fluttur á háskólasjúkrahúsið í Torrevieja, þaðan sem hann hvarf.

„Hann fer í sjúkrabíl þarna uppeftir kl. 4 í fyrradag og svona um 8-leytið þá segjast þeir hafa vísað honum frá af því þeir skildu hann ekki. Hann náttúrulega talar ekki spænsku og hann er ekki að fara að vinna nein verðlaun í ensku heldur. En þetta er alveg fáránlegt, hann gat varla staðið, er fótafúinn og annað,“ segir Ármann.

Fram kemur í frétt DV að Einar Óli sé slæmur til heilsunnar eftir að hann veiktist illilega í Covid-faraldrinum og hefur ekki náð heilsu síðan. Einar Óli er hátt á sextugsaldri.

„Við fréttum síðast af honum 20 mínútur fyrir 12, þá situr hann fyrir utan móttökuna á spítalanum. Eftir það veit enginn neitt,“ segir Ármann.

Ármann segir aðspurður að fjölskylda Einars Óla hafa verið í góðu sambandi við borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins á Íslandi. Segist hann sjálfur þekkja áhrifamikið fólk á Spáni sem kom því í gegn að leit að Einari hófst áður en hinir lögboðnu 48 klukkutímar voru liðnir frá hvarfinu.

- Auglýsing -

Heilbrigðisþjónusta á Spáni er almennt til fyrirmyndar að sögn Ármans en á háskólasjúkrahúsinu í borginni séu tungumálaerfiðleikar og samskiptavandi áberandi.

„Á mínum átta árum hér gef ég heilbrigðisþjónustunni hérna 10 af 10 mögulegum miðað við Ísland, en ég hef m.a. fylgt fjölskyldumeðlimi hér í gegnum dánarferli. En þegar kemur að þessum þætti þá er háskólasjúkrahúsið með allt annað viðmót en t.d. einkasjúkrahús í nágrenninu þar sem ávallt er tryggt að fundin sé manneskja sem getur átt í samskiptum við sjúklinginn. Ég hélt að læknaeiðurinn fæli í sér að þér beri að sinna sjúklingi í hvaða ástandi sem hann er, en hann var aldrei skoðaður,“ segir Ármann sem blöskrar þessi vinnubrögð.

Þau sem mögulega gætu haft upplýsingar um afdrif Einars Óla eru beðin um að hafa samband við Ármann í gegnum Facebook-síðu hans.

- Auglýsing -

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -