- Auglýsing -
Í Facebook hópnum Íslendingar á Spáni er tilkynnt um hvarf konu af flugvellinum í Alicante í gær. Systir hennar setur uppfærsluna inn og óskar eftir því að lögregla og hún verði látin vita ef fólk verður konunnar vart.
Konan átti bókað flug til Íslands með millilendingu í Danmörku, en henni mun hafa verið vísað úr flugvélinni vegna ölvunnar og hún geti því verið hvar sem er. Leit að konunni á og í kringum flugvöllin hefur ekki borið árangur.