Íslensk verslun selur andlitsgrímur sem virðast vera keyptar af AliExpress og sprengdar upp í verði. AliExpress selur misvandaðar vörur frá Kína og hafa áður komið upp mál þar sem íslenskar verslanir kaupa vörur þaðan og selja þær margfalt dýrari.
Glöggur neytandi benti á þetta í Facebook hópnum Vertu á verði. Í færslunni má sjá tvær myndir af sömu vörunni, önnur myndin er skjáskot af vefverslun snyrtistofunnar Fegurð en hin af AliExpress. Verðmunurinn er mikill eða 3.688kr. eða 92% Grímurnar kosta 302 kr. á Aliexpress en 3.990 kr. Hjá snyrtistofunni Fegurð. Notuð er sama myndin af grímunum svo ekki fer á milli mála að hér er um sömu vöru að ræða.
„Ég keypti einmitt af þessari stofu og skannaði svo kóðann aftan á pakningunni, fann þá grímurnar á Ali. og sá verðið…. pantaði 110grímur fyrir 4000kr og borgaði 888kr í aukagjöldin. Finnst það mun betri kaup.“ Skrifar einn viðskiptavinur snyrtistofunnar undir færsluna.