Laugardagur 26. október, 2024
4.5 C
Reykjavik

Íslenska óperan skellir í lás: “Skapar óhjákvæmilega mikla óvissu”

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Íslenska óperan mun ekki halda áfram störfum að sögn stjórnar Íslensku óperunnar.

Íslenska óperan sendi í dag frá sér áskorun til stjórnvalda um að halda áfram að leggja óperunni til fé. Annars muni óperan þurfa að leggja niður allt starf.

“Íslensku óperunni hefur verið tilkynnt að rekstrarframlögum til stofnunarinnar verði hætt, áður en búið er að móta framtíð óperustarfseminnar á landinu sem skapar óhjákvæmilega mikla óvissu.

Niðurskurðurinn er svo róttækur að ekki verður séð annað en að stofnunin neyðist til þess að hætta starfsemi. Þó er gert ráð fyrir að óperan fái verkefnastyrk til þess að sviðsetja óperuna Agnesi eftir Daníel Bjarnason haustið 2024, en ríkisstjórnin styrkti pöntun verksins á sínum tíma.”

Áskorunin er stíluð á Katrínu Jakobsdóttur, Bjarna Benediktsson og Lilju Dögg Alfreðsdóttur.

Hægt er að lesa hana alla hér fyrir neðan

- Auglýsing -

 

„Íslensku óperunni hefur verið tilkynnt að rekstrarframlögum til stofnunarinnar verði hætt, áður en búið er að móta framtíð óperustarfseminnar á landinu sem skapar óhjákvæmilega mikla óvissu.

Niðurskurðurinn er svo róttækur að ekki verður séð annað en að stofnunin neyðist til þess að hætta starfsemi. Þó er gert ráð fyrir að óperan fái verkefnastyrk til þess að sviðsetja óperuna Agnesi eftir Daníel Bjarnason haustið 2024, en ríkisstjórnin styrkti pöntun verksins á sínum tíma.

- Auglýsing -

Íslenska óperan hefur haldið uppi fjölbreyttri starfsemi í rúma fjóra áratugi. Allt frá byrjun hefur starfsemin einkennst af miklum listrænum metnaði og verður ekki um það deilt að stofnunin hefur haft algjöra forystu á sviði óperuflutnings á Íslandi.

Þá verður ekki heldur um það deilt að stofnunin hefur nýtt það fjármagn sem hún hefur haft til umráða með hagnýtum hætti. Til vitnis um þetta má skoða samanburð við rekstur sambærilegra óperustofnanna í nágrannalöndum okkar.

Íslenska óperan er í hugum landsmanna okkar Þjóðarópera. Hún hefur starfað í þágu þjóðarinnar af miklum stórhug og mörg hundruð listamenn hafa tekið þátt í uppfærslum hennar sem sýndar hafa verið fyrir mörg þúsund gesti ár hvert.

Stjórn Íslensku óperunnar skorar á ríkisstjórnina að standa vörð um þá mikilvægu menningarstarfsemi sem Íslenska óperan hefur staðið fyrir og koma í veg fyrir það menningarslys sem af því hlytist að leggja stofnunina niður.

Fyrir hönd stjórnar Íslensku óperunnar,

Pétur J. Eiríksson formaður stjórnar“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -