Tónlistarmaðurinn Hafþór Sindri Hafberg, betur þekktur sem 24/7 hlaut dóm í Héraðsdómi Reykjaness fyrir fíkniefnalagabrot. 98 kannabisplöntur fundust í vörslu Hafþórs. Hann hafði staðið í ræktun í nokkurn tíma
„Fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa föstudaginn 13. maí 2022 í íbúð og bílskúr að […]haft í vörslum sínum í sölu og dreifingarskyni 98 kannabisplöntur og hafa um nokkurt skeið ræktað greindar plöntur og haft í vörslum sínum 0,47 g af maríhúana, sem lögreglumenn fundu við leit í íbúðinni og bílskúrnum.“
Plata Hafþórs sem ber nafnið FM 24/7 naut talsverða vinsælda þegar hún kom út árið 2019. Hafþór hefur gefið út tónlist með röppurum á borð við Yung Nigo Drippin, Daniil og Birgi Hákon.
Hafþór játaði brotið við fyrirtöku málsins þann 4.júlí síðastliðinn. Í dómnum segir að hann eigi nokkurn sakaferil að baki, allt frá árinu 2015. Ferillinn samanstendur af fíkniefnalaga-, umferðarlaga, og hegningarlagabrotum. Hann hefur ekki áður gerst sekur um vörslu fíkniefna í sölu- og dreifingarskyni.
Í júlí árið 2019 var Hafþór dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir líkamsárás. „…kastað rafkerti í andlit hennar og hrint henni í sófa með þeim afleiðingum að hún hlaut mar og yfirborðsáverka yfir vinstra kinnbein og tognun á brjósthrygg,“ segir í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur.
Fyrir fíkniefnalagabrotið hlaut hann fimm mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm. Honum var einnig gert að greiða ríflega hálfa milljón í sakarkostnað.