Ísraelska dagblaðið Haaretz greinir frá því að ísraelski herinn hafi gefið grænt ljós á þá ráðstöfun að „hraða afturköllun“ hermanna frá stórum hlutum Gaza-svæðisins eftir því sem viðræður um vopnahlé eflast.
Herinn rannsakaði fjölmargar leiðir til að draga hermenn út úr palestínsku hólmlendunum (e. enclave), þar á meðal í gegnum Netzarim ganginn (e. Netzarim Corridor), sagði blaðið.
Hinn fjögurra kílómetra djúpi og afar víggirti Netzarim-gangurinn liggur þvert yfir Gaza-svæðið og nær frá landamærum Ísraels að Miðjarðarhafi.
Stofnun gangsins sem þverar Gaza átti sér stað í áföngum sem hófust í október 2023 og lauk með formlegri stofnun hans í lok nóvember sama ár.