J. Snæfríður Einarsdóttir hefur verið ráðin í stöðu sviðsstjóra hafnarinnviða Faxaflóahafna. Með þeirri ráðstöfun er sviðsstjórum fjölgað um einn og verða þá sex manns í framkvæmdarstjórn fyrirtækisins segir í tilkynningu frá Faxaflóahöfnun.
„Snæfríður er Faxaflóahöfnum kunn frá því hún starfaði um tíma sem gæðastjóri til leigu á vegum ráðgjafafyrirtækisins HSE Consulting. Snæfríður hefur breiðan bakgrunn og víðtæka reynslu hún vann áður hjá Samherja, hjá Landvirkjun sem stöðvarvörður, HB-Granda sem forstöðumaður öryggis- og heilsu, HSE Consulting sem ráðgjafi og síðustu tvö ár starfaði Snæfríður sem áhafnarstjóri hjá Eimskip,“ segir fyrirtækið um reynslu hennar.
„Það er virkilega spennandi að ganga til liðs við Faxaflóahafnir og taka í þátt í þeirri innviða þróun sem fram undan er á komandi árum. Það er áskorun og loforð Faxaflóahafna í senn að vinna í takt við þarfir samfélagsins, atvinnulífsins og umhverfisins með grænum, öruggum og skilvirkum áherslum. Þar má nefna uppbyggingu farþegamiðstöðvar á Skarfabakka og landtengingar fyrir skip,“ segir J. Snæfríður Einarsdóttir.