„Maður var að vonast til þess að Costco tæki ekki upp þann íslenska ósið að hækka vörurnar til þess eins að geta sett þær síðar á „tilboð“ eða „útsölu“. Ég keypti svona grasker á 5.499 kr fyrir tveimur árum,“ segir Jóhannes Gunnarsson við mynd af graskerjum í versluninni bandarísku.
„11.september kostaði þetta 7.499. 8.október á tilboði á 9.999. Svona er Costco í dag.“
Færslu Jóhannesar er deilt í hópnum „Vertu á verði – eftirlit með verðlagi“.
Nú er sá tími árs sem matvöruverslanir fyllast af graskerjum og á það sannarlega ekki aðeins við um Costco.
Íslendingar flykkjast í verslanirnar og festa kaup á risavöxnum ávöxtunum, oft fleiri en einum, til þess eins að skafa innan úr þeim aldinkjötið og skera á þá ýmis misvel gerð göt.
Þetta kann að hljóma undanlega sé það slitið úr samhengi, en þetta hefur verið lenskan síðan Hrekkjavökuhátíðin festi sig í sessi hér á landi. Hrekkjavaka er haldin hátíðleg síðasta dag þessa mánaðar, þann 31. október.
Þessi siður, að skera augu og ófrýnilega munna í grasker, fylgir þessari hátíð; hátíð hinna dauðu. Fólk kemur þá gjarnan fyrir ljósum eða kertum inni í tómum graskerjunum svo þau lýsi út um ógnvænleg augun í myrkrinu. Svo er þeim komið fyrir úti á tröppum, í innkeyrslum eða í görðum.
Í Facebook-hópnum sér Hjördís nokkur ákveðinn tvískinnung í kaupum Íslendinga á graskerjum fyrir Hrekkjavökuna.
„Erfitt að skilja að fólk sem hugsar amk eitthvað pínu smá um umhverfismál og mætir stolt með fjölnota pokana sína útí búð, geti um leið tekið þátt í innfluttningi á tugum tonna af graskerum til að skreyta þau og njóta nokkra daga og svo rakleitt í ruslið, án þess að mikill matur í þeim gagnist nokkrum öðrum en músum og rottum á ruslahaugum landsins,“ segir hún.
„Þau eru trúlega notuð í moltugerð eins og flestur matarúrgangur,“ segir þá Ásdís nokkur.
Hjördís kvikar þó ekki frá sinni skoðun:
„Alveg óþarfi að flytja tugir tonna spes til þess, nóg það sem fellur til í matarafganga.“
Ásdís sendir Hjördísi þá hreyfimynd (e. GIF) sem gefur í skyn að Hjördís þurfi bara að „lifa dálítið“ (e. live a little).
Eysteinn er súr yfir hátíðinni eins og hún leggur sig:
„Persónulega skil ég ekki þennan innflutning á amerískum siðum.“
„Það var þokkalega ódýrt að versla í Costco fyrstu vikuna frá opnun en síðan bara dýrt,“ segir Hildur.
Jakobína er hreint ekki hrifin af Costco:
„Það er hvort eð er ekkert í þessarri búð sem ekki er hægt að fá í innlendu verslununum sumir finna þarna eitthvað sem þeir vissu ekki að þeim vantaði. Ömurlegt lagersvæði og allt of stórar klunnakerrur fyrir minn smekk hef þó verslað þarna fljótandi þvottavélarsápu.“