Jóhannes Jónasson, betur þekktur sem „Jói á hjólinu“ er stolt Kópavogs og vel þekkt andlit í Kópavoginum.
Jói varð 80 ára í gær 26.apríl og af því tilefni bauð hann til veislu í salnum SATT á hótel Loftleiðum síðastliðinn sunnudag.
Árið 2019 fékk Jói heiðursverðlaun frá Sögufélagi Kópavogs og Héraðsskjalasafni Kópavogs.
Jói lætur ekki veðrið aftra sig, en Dr. Gunni náði mynd af Jóa um árið yfir hávetur í stinningskulda á hjólinu: „Jói á hjólinu lætur ekki veðrið aftra sér setur bara upp sækadelísk sólgleraugu. Kempan er komin yfir sjötugt en er enn tákn um Kópavog og hjólreiðar. Gott að einhver er að standa sig!“
Mannlíf óskar Jóa innilega til hamingju með afmælið!
Konungur Kópavogs ætti nú skilið smá fjölmiðlaumfjöllun á þessum tímamótum. Jói á hjólinu er áttræður í dag. pic.twitter.com/WPWoqmkWr0
— Hans Steinar (@hanssteinar) April 26, 2022