Snillingurinn Jón Gnarr veltir fyrir sér nöfnum stjórnmálaflokka á Íslandi; gerir nöfnin að umtalsefni á samfélagsmiðlinum Twitter.
Byrjar á Samfylkingunni:
„Samfylkingin er vont nafn. Eins og margt annað þá á það að vísa í e-ð sem fá skilja almennilega og heldur ekki endilega innistæða fyrir hvorki fylkingu né sam. Nýtt nafn og út með þetta hallærislega lógó.“
Jón leggur þetta nafn til:
„Mín tillaga að nýju nafni Samfylkingarinnar væri Sósíaldemókratar Íslands SDI. – en það fær örugglega ekki mörg atkvæði. Mér leiðist alveg smá þetta gildishlaðna jafnaðar-tal en það er þó skárra en Samfylkingin.“
Að mati meistara Jóns eru það Sjálfstæðisflokkurinn og Píratar sem séu einu flokkarnir hér á landi sem eru með flott nöfn og merki:
„Framsóknarflokkurinn sleppur, en allt hitt er vandræðalega vont og hallærislegt.“