Jón Þorsteinsson, söngvari og söngkennari, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri aðfaranótt 4. maí eftir stutta sjúkdómslegu. Jón var 72 ára.
Jón var sonur hjónanna Þorsteins Jónssonar og Hólmfríðar Jakobsdóttur en hann fæddist 11. október 1951 í Ólafsfirði og ólst þar upp.
Í Noregi stundaði hann ungur hjúkrunarnám og hóf söngnám í Ósló 1974. Eftir það fór hann til Árósa og nam söng við Det Jyske Musikkonservatorium. Lá leiðin síðan til Modena á Ítalíu þar sem hann stundaði nám hjá hinum virta söngkennara Arrigo Pola og var Jón fyrstur Íslendinga til að syngja í óperukór Wagner-hátíðarleikanna í Bayreuth en það gerði hann um tveggja ára skeið.
Árið 1980 flutti Jón til Hollands þar sem hann réðst til Ríkisóperunnar í Amsterdam en þar starfaði hann í rúman áratug. Söng hann þar um 50 einsöngshlutverk og vakti athygli fyrir snjalla túlkun sína á tónlist samtímatónskálda. Ári eftir flutninginn, 1981, vann Jón fyrstu verðlaun í keppni Konunglega kirkjutónlistarsambandsins í Hollandi. Eftir það beindi hann áhuga sínum og kröfum á meira mæli að sígildri kirkjutónlist og gat hann sér frægðarorð á meginlandi Evrópu fyrir túlkun sína á trúarlegri tónlist.
Síðustu þrjátíu árin kenndi Jón söng við hina ýmsu tónlistarskóla á Íslandi, sem og í Tónlistarháskólanum í Utrecht þar sem þjálfur og velferð ungra söngvara af ólíku þjóðerni átti hug hans allan, eins og það er orðað í andlátsfrétt mbl.is.
Eftirlifandi eiginmaður Jóns er Ricardo Batista da Silva.