Leikara- og tónlistarparið Júlí Heiðar Halldórsson og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir hafa nefnt dóttur sína Kolfinnu Önnu Kolku Júlídóttir en þau greina frá þessum í sameiginlegri færslu á samfélagsmiðlinum Instagram.
„Dóttir okkar fékk nafnið sitt á þessum sólríka haustdegi. Kolfinna Anna Kolka Júlídóttir. Þrjú nöfn eins og Bjartur stóri bróðir,“ er skrifað við færsluna.
Kolfinna er fyrsta barn þeirra en parið á börn úr fyrri samböndum.
Parið hefur verið lengi í sviðsljósinu þrátt fyrir ungan aldur en þau hafa verið saman síðan 2021. Þórdís hefur vakið mikla athygli með Reykjavíkurdætrum og Júlí Heiðar gaf út plötuna Þrjátíu og þrír fyrr á árinu og er platan ein vinsælasta íslenska platan á árinu.