Einhleypan, rithöfundurinn og hin stórskemmtilega Kamilla Einarsdóttir virðist eiga erfitt með sjálfstjórn þegar kemur að ástinni. Þekkja margir einhleypir limbóið milli þess að sýna áhuga en þó ekki of mikinn. Línudansinn á milli áhugaleysis og að teljast þurfandi – er oft á tíðum flókinn.
Út um víðan veraldarvef gætir leiðbeininga í samskiptum kynjanna og er ein þeirra sú að konur þurfi að muna að sýna ekki of mikinn ákafa. Má gera því skóna að Kamilla Einarsdóttir sé bálskotin í einhverjum og leggi hart af þér að lúta samskiptareglum. Hver hinn heppni er fylgdi ekki í tístinu hennar en áminningin virðist þörf: „Vonandi virkar að setja svona post it miða á símann“.
Vonandi virkar að setja svona post it miða á símann pic.twitter.com/X1PhJoXNRm
— Kamilla Einarsdóttir (@Kamillae) December 28, 2022