Kári Kárason, framkvæmdastjóri Vilko, er kominn til meðvitundar á Landspítalanum. Þar hefur hann verið meðvitundarlaus í ríflega viku, eða frá sunnudeginum 21. ágúst, þegar árásarmaður braust inn á heimili hans og myrti eiginkonu hans, Evu Hrundar Pétursdóttur iðjuþjálfa, á Blönduósi.
Fréttablaðið greinir frá þessu og vitnar í aðstandenda sem segir bata Kára vera framar öllum vonum. Raunar sé bati hans kraftaverki líkastur. Kári fékk skot í kviðinn og var fluttur á Landspítalann þungt haldinn.
Lögregla telur að heilsa hans sé orðin það góða að hann geti gefið skýrslu um hvað gerðist þann 21. ágúst. Sonur Kára og Evu er enn með stöðu sakbornings en hann banaði árásarmanninum með berum höndum. Það hafi þó verið sjálfsvörn enda maðurinn nýbúinn að skjóta foreldra hans.