- Auglýsing -
Lögreglan sendi frá sér tilkynningu fyrir stuttu um umferðarslys sem átti sér stað í morgun á Reykjanesbraut
„Karlmaður á fertugsaldri lést í umferðarslysi á Reykjanesbraut, skammt austan við Fitjar í Reykjanesbæ í dag eftir að ökutæki sem hann ók valt.
Tilkynning um slysið barst viðbragðsaðilum kl. 08.16 og fóru viðbragðsaðilar strax á vettvang.
Lögreglan á Suðurnesjum og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins. Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu.“