- Auglýsing -
Breskur maður var handtekinn í morgun, grunaður um morð á þriggja vikna gömlu ungbarni. Lögreglan var kölluð að íbúðarhúsnæði í Birmingham, Bretlandi og komu að barninu í öndunarstoppi en það lést stuttu eftir komuna á sjúkrahús. 26 ára kona var einnig flutt á slysadeild með áverka en er ekki talin vera í lífshættu.
29 ára karlmaður var handtekinn á vettvangi, grunaður um morð. Rannsóknaraðilar segjast ekki leita fleiri grunaðra í tengslum við málið.