Lögreglu barst tilkynnig um vinnuslys rétt fyrir klukkan sex í gærkvöldi. Sem betur fer var slysið ekki alvarlegt og hlaut maðurinn minniháttar meiðsli. Viðkomandi var fluttur á bráðamóttöku til aðhlynningar. Skömmu áður stöðvaði lögregla ökumann í Laugardalnum en sá er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis. Tekið var sýni úr manninum og honum sleppt úr haldi að því loknu.
Þá hafði lögregla afskipti af fjórum ökumönnum í gærkvöldi sem allir voru grunaðir um akstur undir áhrifum vímuefna. Einn þeirra sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og hófst þá eftirför lögreglu sem endaði í Kópavogi þar sem bifreiðin var stöðvuð. Sá er grunaður um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna. Samkvæmt dagbók lögreglu var nóttin að öðru leyti róleg.