- Auglýsing -
Karlmaður lést í húsbíl sínum við Lónsbraut í Hafnarfirði snemma í morgun. Bíllinn var alelda þegar komið var á vettvang. Hinn látni var einn í bílnum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglu barst tilkynning um klukkan sex í morgun um eldsvoða og voru lögregla og slökkvilið strax kölluð út á svæðið.
Tæknideild lögreglu annast vettvangsrannsókn til að komast að upptökum eldsins. Lögregla veitir ekki frekar upplýsingar að svo stöddu.