Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra og forsetaframbjóðandi, gerir upp árið í nýjum pistli sem hún setti á samfélagsmiðla fyrr í dag en óhætt er að segja að árið hennar hafi verið nokkuð tíðindamikið.
„Þá lýkur þessu ári og nýtt tekur við. Stundum verð ég varla vör við áramót því fátt breytist en svo sannarlega má segja um þetta ár að það hafi markað tímamót; ekki endilega núna um áramótin heldur árið sjálft. Ég byrjaði árið á kafi í vinnu eins og undanfarna áratugi þar sem málefni Grindvíkinga og kjarasamningar á almennum vinnumarkaði voru mér efst í huga,“ skrifar Katrín en víkur svo máli sínu að forsetaframboðinu en hún tók ákvörðun að segja af sér sem forsætisráðherra og þingmaður til að bjóða sig fram til forseta Íslands.
„Síðan breyttist allt þegar ég ákvað að gefa kost á mér í forsetaframboð vegna mikillar hvatningar og fjölda áskorana. Við tók ekki minni vinna en öðruvísi þar sem ég fékk það einstæða tækifæri að eiga stefnumót við þjóðina og hitta ótrúlegan fjölda fólks hringinn í kringum landið. Þó að ekki hafi ég borið sigur úr bítum í kosningunum var ég stolt af minni baráttu og þakklát fyrir allt það frábæra fólk sem vann með mér í baráttunni,“ en sumir telja að brotthvarf hennar hafi tryggt fall ríkisstjórnarinnar og orðið til þess að Vinstri Græn náðu ekki inn á þing í nýafstöðnum kosningum.
Spennandi verkefni fram undan
„Seinnihlutinn af árinu var öðruvísi. Hann fól í sér úrvinnslu, endurheimt og uppbyggingu – allt hlutir sem ég hef gefið mér lítinn tíma í á undanförnum árum og áratugum. Og enn þakka ég fyrir allt þetta frábæra fólk í kringum mig, gamlir og nýir vinir sem hafa gefið mér nýja reynslu, nýjar hugsanir og ný verkefni. Ég ætla ekki að fara að telja neinn upp – upptalningin yrði allt of löng – en ég staldra stundum við og þakka fyrir áskoranirnar sem þið hafið fært mér á árinu. Þið vitið hver þið eruð!
Nú tekur við nýtt ár. Framundan eru spennandi verkefni sem ég brenn fyrir og hlakka til að sinna. En fyrst kveðjum við gamla árið og eins og undanfarin 17 ár þá gerum við á mínu heimili það með því að fagna afmæli miðjusonarins sem kom í þennan heim á gamlársdag 2007. Hann kvaddi gamla árið með því að keppa í hlaupum í gær og standa vaktina í gamlárshlaupi ÍR í dag (alltaf frekar upptekin eins og ein kona sem ég þekki) en við fáum að eiga stund með honum eftir hádegið í dag. Ef þetta ár hefur kennt mér eitthvað er það hvað stundirnar með sínum nánustu eru dýrmætar!
Gleðilegt ár kæru vinir!“ skrifar Katrín svo að lokum.