Mögulegt er að neyðarskilaboðin sem voru send til Neyðarlínunnar um erlenda ferðamenn fasta í helli í Kerlingarfjöllum komi frá útlöndum en Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir að það komi vissulega til greina en það sé ennþá verið að vinna úr gögnum. „Það er ekkert sem bendir til annars,“ sagði Sveinn við mbl.is þegar hann var spurður hvort hægt væri að fullyrða að beiðnin væri falsboð. Eins og fjallað hefur verið ítarlega um í fjölmiðlum þá var farið strax að leita að ferðamönnunum þann 5. ágúst en var leitinni hætt daginn þegar grunur lék á að um falsboð væri að ræða. Tæplega 200 manns tóku þátt í leitinni og óhætt er að segja að tíma margra hafi verið sóað í ekkert. Falsboð eru að sögn Svein mjög sjaldgæf og man hann sjálfur aðeins eftir einu svipuðu atviki en slíkt átti sér stað fyrir rúmum 20 árum. Þá sagði hann einnig að blekkingar sem þessar brjóti hegningarlög og gætu þeir einstaklingar sem senda falsboð fengið þriggja mánaða fangelsisdóm hafi lögreglan hendur í hári þeirra.