Kertafleyting til að minnast fórnarlamba þjóðarmorðsins á Gaza í Palestínu fer fram annað kvöld, 29. október klukkan 20:00 og fer hún fram við Tjörnina í Reykjavík. Í viðburðarlýsingu á Facebook segir meðal annars: „Þjóðarmorð Ísraels á Gaza hefur staðið yfir í meira en heilt ár, og meira en 42 þúsund hafa verið drepin í sprengjuárásum Ísraelshers, þúsundir liggja undir húsarústum. Læknar og aðrir sérfræðingar telja að tugþúsundir hafi óbeint verið myrtir eftir gjöreyðileggingu Ísraelshers á öllum lífsnauðsynlegum innviðum á Gasa. Ef við bregðumst ekki við mun Ísrael myrða hundruðir þúsunda í viðbót.“
Til viðbótar segir:
„Við komum saman og kveikjum kerti, syngjum, hlýðum á ljóðalestur og krefjumst friðar og réttlætis í Palestínu og Líbanon og að brjálæðinu ljúki.