Keyrt var á dreng sem var á leiðinni í skóla í Úlfarsárdal í morgun en hann var á hlaupahjóli sínu þegar bíll keyrði á hann. Kallaður var til sjúkrabíll en drengurinn slasaðist á fæti. Lögreglan gat þó ekki staðfest að drengurinn hafi farið á sjúkrahús en sagði að það væri líklegt.
Keyrt var á hann rétt hjá grunnskóla hverfisins hjá umdeildu hringtorgi en hlýða margir bílstjórar ekki reglum þess og telja sumir íbúar hverfisins að um eitt verst hannaða hringtorg borgarinnar en hægt er að sjá mynd af því hér fyrir neðan.
Upphaflega var sagt að drengurinn hafi verið á reiðhjóli en rétt er að hann var á hlaupahjóli og hefur fréttin verið uppfærð með þeim upplýsingum.