Keyrt var á tvo sjálfboðaliða sem voru við vinnu við Reykjarvíkurmarþonið sem fór fram í gær. Sandra Rós Hrefnu Jónsdóttir var stödd á Seltjarnarnesi að sinna brautarvörslu þegar keyrt var á hana en hún náði að bjarga sér áður bíllinn keyrði hana alveg niður.
„Það small eitthvað í hnénu á mér við þetta óhapp þar sem ég stökk frá svo ég yrði ekki keyrð niður með þessum 2.5 tonna bíl,“ sagði hún við Vísi um atvikið. „Þetta var ekkert þægilegt. En ég stóð þarna áfram og kláraði þessa vakt,“ hélt Sandra áfram.
Eftir að hún kláraði vaktina sína fór hún til lögreglunnar og gaf skýrslu um málið og gaf upp bílnúmer ökumannsins. Svo hélt hún upp á bráðamóttökuna til að láta líta á hnéið. Þá leitar hún einnig vitna að atvikinu svo að hún hafi eitthvað meira gegn ökumanninum en orð sitt.
„Svona hegðun, fólk má ekki fá að komast upp með svona. Þetta er bara ekki í lagi.“
Lamdi í húddið
Þá var einnig keyrt á Steingríms Ólafsson sem var við störf hjá þjónustustöð N1 á Hringbraut. Í viðtali við DV segir hann að Sveinn Elías Elíasson hafi keyrt á sig en Sveinn neitar sök og segir að Steingrímur hafi skemmt bílinn hans. Báðir hyggjast leggja fram kæru vegna málsins.
Í myndbandi sem DV hefur undir höndum sést Steingrímur lemja í húddið á bíl Sveins og hella yfir það drykk en DV tekur fram að ekki sé vitað hvað hafi gerst áður en myndbandið hefst.