KFUM og KFUK hefur sent frá sér yfirlýsingu um séra Friðrik.
Sagnfræðingurinn Guðmundur Magnússon hefur sent frá sér nýja ævisögu um Friðrik Friðriksson, en hann var oftast kallaður séra Friðrik, og í henni greinir sagnfræðingurinn frá því að séra Friðrik hafi káfað á 11 ára dreng í sunnudagaskóla. Í bókinni er haft eftir manni á áttræðisaldri að aðrir piltir hefðu upplifað slíkt hið sama.
Áfallið er mikið fyrir marga en séra Friðik hefur verið dásamaður af þjóðinni áratugum saman og eru tvær styttur af honum í Reykjavík og sýnir önnur þeirra séra Friðrik með ungum dreng. Nú hafa KFUM og KFUK sent frá sér frá yfirlýsingu um málið.
„KFUM og KFUK vilja opna leið fyrir þá eða þau sem hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni eða ofbeldi af hálfu sr. Friðriks (eða hafa beinar heimildir um slíkt t.d. frá nánum ættingja) til að koma fram með þá reynslu sína.
Þekking samtímans segir okkur hve mikilvægt það er fyrir velferð þeirra einstaklinga sem í hlut eiga að bera ekki slíkar byrðar í hjarta sér.
Forysta KFUM og KFUK hefur leitað til þeirra Sigrúnar Júlíusdóttur félagsráðgjafa og Bjarna Karlssonar prests um að taka á móti sögum þolenda.
Þau hafa langa reynslu af sálgæslu og af vinnu með þolendum að úrlausn sinna mála. Bjarni þekkir jafnframt til starfs félaganna án þess að hafa gegnt neinni trúnaðarstöðu innan þeirra. Fyllsta trúnaðar verður gætt við þau sem til þeirra leita.
Þolendum býðst jafnframt áfram að hafa samband við samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs sé það þeim auðveldara.
KFUM og KFUK, Valur og þau félög önnur sem kennt hafa sig við sr. Friðrik eru fjöldahreyfing fólks sem upplifir nú sorg. Eins og fram hefur komið vilja fyrrgreind félög horfast í augu við sögu sína, hversu sár sem hún kann að reynast. Hluti af því er að stuðla að því sannleikurinn komi upp á yfirborðið, meðal annars svo hægt sé að biðja brotaþola afsökunar.
Hægt er að hafa samband við Sigrúnu í gegnum netfangið [email protected] eða í síma 891 7638 og við Bjarna í gegnum netfangið [email protected] eða í síma 820 8865.“