Gul viðvörun er nú í gildi á höfuðborgarsvæðinu og hefur veðrið líklega ekki farið framhjá mörgum borgarbúum. Töluvert hefur verið um eignartjón, hjólhýsi fauk á bíl í Kópavogi og gjörskemmdist.
Flugvél Play þurfti að breyta um stefnu og lenda á Akureyri í stað Keflavíkur, eftir þrjár misheppnaðar tilraunir.
Lögregla sendi frá sér tilkynningu í dag þar sem hún biðlar til verktaka og þá sem bera ábyrgð á byggingasvæðum að huga að vinnusvæðum en útköll vegna fjúkandi muna hafa heltekið vinnudag lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan segir vandamál út frá byggingarsvæðum vera sérstaklega stór hluti þessa útkalla. Einnig er almenningur beðinn um að huga að lausamunum.