- Auglýsing -
Greint var frá því í gær að: „Á öðrum tímanum eftir hádegi hafi borist tilkynning til lögreglu um líkfund í fjörunni norðan Eiðsgranda í Reykjavík.“
Samkvæmt fyrstu niðurstöðum rannsóknar lögreglu fannst kona látin í fjörunni norðan Eiðsgranda í Reykjavík eftir hádegi í gær.
Ekki er talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti.
Lögreglan getur ekki veitt frekari upplýsingar að svo stöddu.