Konráð S. Guðjónsson, aðalhagfræðingur Stefnis tók við starfinu í byrjun árs 2022, en var áður aðstoðarframkvæmdarstjóri Viðskiptaráðs.
Konráð, hagfræðingur hefur verið óhræddur við að tjá skoðanir sínar opinberlega og látið sig tölfræði varða. Í tvíti sínu í gær er hann ekki á allt sáttur við útskýringar Þórólfs sóttvarnalæknis, og segir:
„Óháð COVID verður Þjóðskrá að stíga hér fram svo við höfum hugmynd um hversu margir búa á þessu skeri.
Munurinn er það mikill (~2x nýgengi hjá bólusettum!) að annaðhvort standast þessar skýringar sóttvarnalæknis varla eða þá að þessi skekkja sé á allt öðrum skala en ætla mætti.“
Tölfræðin hefur verið útskýrð með margvíslegum hætti, en undir tvítinu segir Ari að þetta séu skýringarnar:
„Ég held líka að þarna sé verið að draga ályktanir út frá fjölbreyttum hóp. 1) óbólusettir með fyrri sýkingu sem veitir vörn 2) fólk sem gat ekki farið í bólusetningu og fer extra varlega 3) fólk með skráða búsetu sem ekki er á landinu 4) álhattar sem fara ekki í próf 5) hinir.“
Hér má sjá hinn umrædda texta frá sóttvarnalækni:
Og hér er hægt að lesa vangaveltur Konráðs:
Óháð COVID verður Þjóðskrá að stíga hér fram svo við höfum hugmynd um hversu margir búa á þessu skeri.
Munurinn er það mikill (~2x nýgengi hjá bólusettum!) að annaðhvort standast þessar skýringar sóttvarnalæknis varla eða þá að þessi skekkja sé á allt öðrum skala en ætla mætti. pic.twitter.com/tsqdSmVu5p
— Konráð S. Guðjónsson (@konradgudjons) January 8, 2022