Laugardagur 11. janúar, 2025
3.8 C
Reykjavik

Kristín Birna er látin

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Fyrrverandi Íslandsmeistari í akstursíþróttum, Kristín Birna Garðarsdóttir, lést á Landakoti 1. janúar síðastliðinn, af völdum Alzheimer, 62 ára að aldri.

Kristín fæddist 25. ágúst 1962 en foreldrar hennar eru Anna María Samsted og Garðar Guðmundsson. Systur hennar eru þær Kamilla Björk, Linda og Lilja.

Það var á Seltjarnarnesinu sem Kristín ólst upp en seinna bjó hún í Reykjavík en síðustu árin bjó hún í Mosfellsdal með fjölskyldu sinni.

Starfaði hún meðal annars í versluninni Virkni í Ármúla, Litaveri og seinna sem skrifstofustjóri á fasteignasölunum Remax Bæ, Remax Lind og Fasteignasölunni Bæ í Kópavogi.

Með sanni má segja að Kristín sé goðsögn í akstursíþróttum en aðeins 16 ára eignaðist hún mótókrosshjól og varð fyrsta konan á Íslandi til að keppa í mótókrossi. Árin 1979 til 1986 keppti hún í Íslandsmeistarakeppnum í íþróttinni en hætti þegar hún eignaðist fyrsta barnið sitt.

Sumarið 1986 gerði hún sér þó lítið fyrir og tók þátt í rallýkrossi á bíl sem hún hafði fengið lánaðan hjá vini sínum og varð þannig fyrsta konan til að keppa í íþróttinni. Árið 1990 eignaðist Kristín sinn eigin bíl og varð Íslandsmeistari í rallakstri þrjú ár í röð. Í eitt skipti keppti hún ólétt af öðru barni sínu en hún var þá komin fjóra mánuði á leið.

- Auglýsing -

Þá tók hún einnig þátt í torfærukeppni sumarið 1990 á sérútbúnum bíl og varð þannig fyrsta konan til þess að keppa í þeirri íþrótt. Hafnaði hún í 7. sæti. Aukreitis keppti Kristín í sparakstri, brautarkeppnum, kvartmílu, ökuleikni og svo framvegis. Í sjö ár sat hún í stjórn Vélhjólaíþróttaklúbbsins.

Ekki hafði Kristín aðeins óþreytandi áhuga á akstri á bílum og vélhjólum heldur einnig á flugi. Hún fór í flugnám árið 1977 ásamt manni sínum og tók einkaflugmannspróf árið 1980. Kristín átti hlut í tveimur flugvélum.

Lætur Kristín eftir sig maka sinn, Guðberg Guðbergsson en þau kynntust árið 1977 og bjuggu saman í 47 ár en þau áttu sameiginlegt áhugamál í fluginu og akstursíþróttunum. Börn þeirra eru Anna Björk og Viktor og eru barnabörnin fjögur.

- Auglýsing -

Útför Krist­ín­ar Birnu fer fram mánu­dag­inn 13. janú­ar kl. 13 frá Grafar­vogs­kirkju.

Mbl.is sagði frá andlátinu.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -