Kristinn Haukur Skarphéðinsson er fallinn frá eftir skammvinn veikindi og var hann 69 ára gamall en mbl.is greinir frá andláti hans. Kristinn fæddist árið 1956 í Reykjavík og voru foreldrar hans voru Kristín Guðmundsdóttir og Skarphéðinn Jóhannsson. Eftir stúdentspróf fór hann í líffræðinám í Háskóla Íslands og fór svo í meistaranám í dýravistfræði í Bandaríkjunum síðar. Hann starfaði hjá Náttúrufræðistofnun Íslands í rúm 30 ár þar sem hann var meðal annars yfir fagsviði dýrafræði. Kristinn skrifaði einnig fjölda ritrýndra greina um fuglafræði og náttúrufræði. Kristinn rannsakaði íslenska haförninn mikið á starfsævi sinni og snérust þær rannsóknir að miklu leyti um lífshætti hans og búsetu og var Kristinn mjög virtur á sínu sviði fyrir þær rannsóknir. Kristinn lætur eftir sig eiginkonu og tvö börn.