- Auglýsing -
Kristrún Frostadóttir segir næstu daga „ákvarða í hvaða farveg íslenskt samfélag ratar næsta áratuginn“.
Formaður Samfylkingarinnar, Kristrún Frostadóttir flaug til Reykjavíkur frá Höfn í Hornafirði í dag og birti ljósmynd úr flugvélinni á Facebook. Við myndina skrifaði hún niður hugleiðingar sínar varðandi komandi kosningar. Sagði hún næstu daga vera mikilvæga því þeir ákvarði hvert samfélagið á landinu stefnir næsta áratuginn.
Hér má lesa færsluna:
„Nýr dagur.
Og mögulega nokkrir dagar í nýtt upphaf fyrir okkur á Íslandi. Ef fólkið í landinu kýs. Næstu dagar eru mikilvægir. Næstu dagar ákvarða í hvaða farveg íslenskt samfélag ratar næsta áratuginn. Klofin þjóð, hörð hægri beygja, uppbrot á vinstri vængnum eða samstaða um það sem mestu máli skiptir.
Við viljum öll vera stolt af Íslandi og hvernig við höldum utan um hvert annað hérna. Það er mikið í húfi. En það er líka von í loftinu. Því það glittir í nýtt upphaf.“