Fimmtudagur 9. janúar, 2025
-6.2 C
Reykjavik

Kröfðust þess að Alma Möller fordæmdi árásir á heilbrigðisstarfsfólk á Gaza – Lögreglan kölluð til

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Í gær fór hópur heilbrigðisstarfsfólks og almennra borgara í heilbrigðisráðuneytið til að færa Ölmu Möller, heilbrigðisráðherra, yfirlýsingu. Hópurinn krafðist þess meðal annars að heilbrigðisráðherra fordæmi eyðileggingu á heilbrigðiskerfinu í Palestínu og að hún beiti sér með virkum hætti til þess að stöðva þjóðarmorðið.

Yfirlýsing hópsins, sem samanstóð af heilbrigðisstarfsfólki og öðrum borgurum var svohljóðandi:

Gott fólk. 

Við krefjumst þess að Alma Möller, í krafti embætti síns, fordæmi, ásamt Ríkisstjórn Íslands, gereyðileggingu allra heilbrigðisinnviða á Gaza. Jafnframt, að hún, ásamt ríkisstjórninni, krefjist þess þegar í stað á alþjóðavettvangi, að alþjóðalögum sé fylgt eftir í Palestínu. 

Það að sjúkrabílar séu skotmörk, að sjúkrahús séu skotmörk, að heilbrigðisstarfsfólk séu skotmörk, er glæpur. 

- Auglýsing -

Við krefjumst þess að Alma Möller taki undir kröfu framkvæmdarstjóra Alþjóða Heilbrigðismálastofnunarinnar, Dr. Ghebreyesus, og aðalritara Amnesty International, Dr. Callamard,og Aðalritara Ammesty International um að Hussam Abu Safyia, læknir og forstjóri Kamal Adwan sjúkrahússins, síðasta starfhæfa sjúkrahússins á Norður Gaza, verði sleppt, tafarlaust! 

Hlutverk heilbrigðisstarfsfólks um allan heim, er, að standa vörð um lífið. 

Nú skiptir öllu máli, að fólk standi saman til að varðveita þetta grundvallarlögmál heilbrigðisstarfsis. 

- Auglýsing -

VIÐ VERÐUM AÐ LÁTA RÖDD OKKAR HEYRAST Á ALÞJÓÐAVETTVANGI. ÞAÐ ER OKKAR SKYLDA.

Reykjavík, 

8.janúar 2025 

Hópurinn klæddist fatnaði heilbrigðisstarfsfólks og kraup á gólfinu til að minna á þá heilbrigðisstarfsmenn sem teknir hafa verið til fanga af Ísraelsher, auk þeirra 1050 heilbrigðisstarfsmanna sem hafa verið myrt af Ísraelsher síðustu 14 mánuði.

Stríðshljóð voru spiluð úr hátölurum til þess að undirstrika að 654 árásir hafa verið gerðar á heilbrigðisstofnanir á Gaza síðan 7. október, auk þess sem einungis 16 af 36 spítölum á svæðinu eru starfhæfir og það einungis að hluta til. Hópurinn bað um að fá að tala við ráðherra eða ráðuneytisstjóra. Áður en nokkur úr ráðuneytinu gaf sig fram komu að minnsta kosti 8 lögreglumenn á staðinn. Fyrstu viðbrögð starfsfólks ráðuneytisins var að hringja á lögregluna. Það var ekki fyrr en eftir 30 mínútur að ráðuneytisstjóri kom að máli við hópinn og hann kom erindi sínu til skila.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -