Nú í morgunsárið mun landsmönnum eflaust ekki verða um sel þegar þeir stíga út fyrir hússins dyr, enda gríðarlegur kuldi sem tekur á móti þeim. Frost er í kringum 15 stig við ströndina en 20 stig inn til landsins, samkvæmt Veðurstofu.
Þegar líða tekur á daginn mun þó draga úr frostinu og það fara niður í eina til átta gráður.
Nú er vetrarfærð um land allt; víða er hálka eða hálkublettir á vegum og sumsstaðar snjóþekja. Nokkrar lokanir eru við verstu skilyrðin. Það er á Dynjandiheiði, í Víkurskarði og á Dettifossvegi.
Í dag verður frostið mildast við vesturströnd landsins. Á morgun er spáð tveggja til tólf stiga frosti. Lesendum er bent á að kanna færð á vef Vegagerðarinnar og halda örugg út í daginn.