Kveikt var í anddyri lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötu í Reykjavík annan í jólum.
Í tilkynningu frá lögreglunni segir að á tíunda tímanum að morgni annars dags jóla hafi eldur verið borinn inn í anddyri lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötu með þeim afleiðingum að eldur kviknaði þar. Varðstjóri á vakt varð strax eldsins var og náði hann með snarræði að slökkva eldinn í anddyrinu með handslökkvitæki. Var málið tilkynnt héraðssaksóknara og fer hann með rannsókn málsins þar sem um er að ræða meinta tilraun til íkveikju og eftir atvikum meint brot gegn valdstjórninni.
Embættið getur ekki veitt frekari upplýsingar um málið þar sem héraðssaksóknari fer með rannsókn þess.