Þann 8. mars næstkomandi er alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti en lengi hefur hafa fjöldi samtaka staðið fyrir baráttufundum undir ýmsum formerkjum. Í ár verður gengið til stuðnings Palestínu.
Safnast verður saman á Arnarhóli klukkan 16:40 þann 8. mars og gengið klukkan 17:00 sem leið liggur í PORTIÐ í gamla Kolaportinu, þar sem haldinn verður baráttufundur.
Í fréttatilkynningu sem barst frá skipuleggjendum fundarins segir eftirfarandi:
„Þjóðarmorðið sem nú stendur yfir á Gaza er feminískt baráttumál. Við getum ekki aðskilið baráttu fyrir kvenréttindum frá baráttu fyrir friði, jöfnuði og réttlæti. Við krefjumst þess að allar konur njóti frelsis og mannréttinda án mismununar! Samstaða með Palestínu er kvennabarátta því ástandið á Gaza er ekki síst hryllilegt fyrir konur og börn. Konur á Gaza eru í hrikalegri neyð. Sem dæmi má nefna að 50.000 barnshafandi konur bíða þess að fæða börn við skelfilegar aðstæður, konur með börn á brjósti búa við hungur og eiga erfitt með að framleiða mjólk, sem veldur barnadauða. Á Íslandi hafa konur verið leiðandi í baráttu fyrir vopnahléi á Gaza, rétt eins og konur hafa alltaf verið leiðandi í friðarbaráttunni.“
Það er hún Drífa Snædal sem verður kynnir á fundinum en erindi flytja Enas Dajani, Giti Chandra, Bergþóra Snæbjörnsdóttir og Amal Tamimi. Tónlistaratriði verða í höndum Steinunnar Eldflaugar og Silju Aðalsteinsdóttur.
Að viðburðinum standa:
Menningar- og friðarsamtökin MFÍK
Félagið Ísland Palestína
Stígamót
UN Women
Sósíalískir femínistar
Jafnréttisskólinn GRÓ GEST
Kvennasögusafn Landsbókasafn Íslands
Kvenréttindafélag Íslands
Mannréttindaskrifstofa Íslands
Feminísk fjármál
Samtökin 78
Samtök Hernaðarandstæðinga
Félagsráðgjafafélag Íslands
Efling
Femínísk Fjármál
Iðjuþjálfafélag Íslands
Mannréttindaskrifstofa Íslands
Samtök um Kvennaathvarf
Hér er viðburðurinn á Fb:
https://www.facebook.com/events/7131199153654190