- Auglýsing -
Náið er fylgst með Reykjanesskaganum og þeim hræringum sem þar eru, en í gær stóð yfir úrvinnsla á gevitunglamyndum sem teknar hafa verið af svæðinu.
Jörð skelfur enn á Reykjanesskaga, þótt heldur hafi dregið úr skjálftum síðdegis í gær. Hátt í fimmtíu skjálftar 3 að stærð eða stærri hafa riðið yfir undanfarna þrjá sólarhringa, þar af einn skjálfti upp á 4 í gærnótt.
Nýjar gervitunglamyndir staðfesta kvikusöfnun á Reykjanesskaga. Kvikan reynir að brjóta sér leið upp á yfirborðið, og veldur jarðskjálftum. Grannt er fylgst með svæðinu.