Ný yfirlitsgrein um nýjungar í meðferð lungnakrabbameins birtist í Læknablaðinu á dögunum. Tómas Guðbjartsson, prófessor í skurðlækningum er einn höfunda en fyrsti höfundur greinarinnar er Hrönn Harðardóttir lungnalæknir. Tíu sérfræðingar standa að greininni sem tók rúmt ár í vinnslu.
Greinin í Læknablaðinu setur nýjungar í meðferð í fókus; ný lyf við útbreiddum sjúkdómi, berkjuómspeglun, hnitmiðaða geislameðferð og skurðaðgerðir með aðstoð VATS sjónvarpstækni.
Tómas segir að öllum þessum nýjungum sé beitt hér á landi og höfundar greinarinnar séu mjög stolt af því.
Á Facebook síðu sinni segir hann að lungnakrabbamein sé enn annað algengasta krabbameinið á Íslandi og dragi fleiri til dauða en nokkurt annað krabbamein. Hann segir þó að góðu fréttirnar séu að 90 prósent tilfella megi rekja til reykinga, en reykingar hafi stórminnkað hérlendis á síðustu áratugum, og því hafi nýgengi sjúkdómsins lækkað.
Hann bætir við að þannig þurfi þetta krabbamein ekki að vera sami faraldur og það er í dag.
Hér má fræðast betur um málið.