Rétt eins og í gær héldu gestir landsfundar Sjálfstæðisflokksins í Laugardalshöll áfram að brjóta umferðarreglur en þegar blaðamaður Mannlífs mætti á svæðið var tugum bíla lagt ólöglega.
Mikil barátta er um formannsembættið en Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Guðrún Hafsteinsdóttir þingmenn flokksins sækjast báðar eftir því. Þá má ekki gleyma Snorra Ásmundssyni listamanni sem einnig hefur tilkynnt um framboð sitt. Þá berjast Jens Garðar Helgason og Diljá Mist Einarsdóttir um varaformannsembættið. Líklegt er að fundurinn í ár verði sá fjölmennasti í sögu flokksins.
Lögreglan var mætt á svæðið og sagði lögreglumaður í samtali við Mannlíf að búið væri að sekta eitthvað af þeim ökumönnum sem höfðu lagt ólöglega og héldu lögreglumenn þeirri vinnu áfram eftir að hafa rætt við blaðamann Mannlífs.
Hér fyrir neðan er myndasyrpa af bílum sem lagt var ólöglega en rétt er að taka fram að tugi lausra stæða var að finna við Laugardalsvöll þegar þessar myndir voru teknar.