Í umsögn Landverndar sem var send á Skipulagsstofnun kemur fram að Landvernd telji að Hafnafjarðarbær verði að endurskoða áætlanir um mannvirki við Ástjörn og virða friðlýsingu svæðisins.
Vatnafari getur raskast í tjörninni
Ástjörnin sjálf og nánasta umhverfi hennar er friðlýst og nýtur auk þess verndar náttúruverndarlaga eins og hraunið umhverfis hana. Landvernd segir í umsögninni: „að fara í stórar framkvæmdir alveg við tjörnina er mjög líklegt til þess að raska vatnafari tjarnarinnar. Ástjörn er grunnt stöðuvatn þar sem grunnvatnsstaðan ræðst af grunnvatnsstöðu bergsins í kring. Slík stöðuvötn eru viðkvæm fyrir náttúrulegum sveiflum og þola illa rask, eins og dæmi frá þurrkatíð sl. sumar sýna. Hætt er við því að með greftri fyrir mannvirkjum alveg við tjörnina skerðist rennsli í hana eða að frárennsli frá henni opnist þannig að vatnafar hennar raskist.“
Uppbygging stríðir gegn friðlýsingarskilmálum
Landvernd óttast að svokallaðar mótvægisaðgerðir sem greint er frá í kafla 6.2 í matsáætlun sem vísað er í hér að ofan, til að sporna við þessu, séu ekki nægjanlegar til að tryggja að vatnafar tjarnarinnar raskist ekki.
Það er því mat Landverndar að fyrirhuguð uppbygging stríði gegn friðlýsingarskilmálum. Jafnframt telur Landvernd að með framkvæmdunum verði brotið gegn 61. gr. náttúruverndarlaga nr. 60/2013 bæði þar sem um er að ræða rask á vatnafari stöðuvatns stærra en 1000 m2 (1. mgr. a liður 61. gr. náttúruverndarlaga) sem og á hrauni (2. mgr. a liður 61. gr. Náttúruverndarlaga).