Í heil fjórtán ár frá Hruninu hefur Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, hvorki veitt viðtöl né tjáð sig um aðdraganda og eftirmála íslenska bankahrunsins. Nú hefur hann loksins stigið fram og opnar sig í nýrri bók, Uppgjör bankamanns.
Í bókinni segist hann sjálfur, og annað fólk sem starfaði í bönkunum, hafa unnið af heilum hug. Rúmlega þrítugur að aldri var hann skyndilega orðinn bankastjóri. „Ég er fullkomlega sammála því að margt hefði mátt gera betur. Við vorum ekki nógu varkár og fórum of geyst. En ég held samt að sú skýring sé ekki alls kostar rétt að í íslensku bankakerfi hafi slæmt fólk verið að verki,“ segir Lárus í samtali við Fréttablaðið.
Þetta voru hrikalegir atburðir sem kölluðu fram sterkar tilfinningar. En andrúmsloftið hefur róast og þetta er spegill og saga sem hefur ekki verið sögð að mínu viti. Þetta er auðvitað ótrúleg saga. Fyrir einhverja skrítna tilviljun er ég orðinn bankastjóri Maður fær allt að því kjánahroll yfir því í dag. Og af því að við erum að tala um lærdóm: þó að ég hafi fundið mig mjög vel í að vera bankamaður þá lærði ég það alla vega af þessu að mig langar ekki að verða bankastjóri. Ég þarf þá ekki að eltast við það meir.“