Ráðningasamningur Almars Guðmundssonar bæjarstjóra Garðabæjar var samþykktur með þremur atkvæðum gegn einu í bæjarráði í gær. Einn bæjarfulltrúi sat hjá í atkvæðagreiðslunni. Samningurinn verður lagður fram í bæjarstjórn til staðfestingar.
Samkvæmt samningnum eru grunnlaun Almars 2.194.168 krónur á mánuði. Grunnlaunin verða endurskoðuð 1. júní ár hvert í samræmi við breytingar á launavísitölu Hagstofu Íslands. Auk þessa fær hann ýmis hlunnindi eins og t.d. bifreiðastyrk sem nemur 105.832 krónum á mánuði og laun í 6 mánuði eftir að starfi hans sem bæjarstjóra lýkur.
Svo skemmtilega vill til að samtala grunnlauna og bifreiðstyrks nýráðins bæjarstjóra gera sléttar 2.300.000 krónur.
Á öndverðum meiði
Meiri- og minnihlutinn lögðu fram ólíkar skoðanir á launum nýráðins bæjarstjóra.
Ingvar Arnarson hjá Garðabæjarlistanum, lagði fram eftirfarandi bókun á fundi bæjarráðs Garðabæjar í gær.
„Hérna höfum við samning sem er gerður af Sjálfstæðisflokknum við oddvita þeirra og það án allrar aðkomu minnihlutans. Við í Garðabæjarlistanum viljum hafa laun bæjarstjóra lægri en þau sem eru í þessum samningi. Við teljum þetta of há laun fyrir þau störf sem bæjarstjóri í 18.000 manna sveitarfélagi á að fá.
Samkvæmt bókun Bjargar Fenger, bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokkins kemur fram: „Við gerð ráðningarsamnings um starfskjör bæjarstjóra Garðabæjar var horft til starfskjara bæjarstjóra í sveitarfélögunum í kring. Starfskjör bæjarstjóra Garðabæjar voru því bæði einfölduð og lækkuð frá því sem áður var. Þess má geta að í ráðningarsamningnum er nú kveðið á um bifreiðastyrk vegna afnota bæjarstjóra á eigin bíl í stað þess að bæjarstjóra sé látið í té bifreið vegna starfsins.
Fullyrðingu um að Garðabær sé á einhvern hátt að taka sér stöðu gegn almennri launaþróun í landinu er hafnað.“
128 kr á íbúa
Samkvæmt léttum útreikningum Mannlífs á launum bæjarstjóra Garðabæjar og þeim deilt niður á íbúafjölda gerir það u.þ.b. 128 krónur á hvern íbúa í sveitarfélaginu. Myndi það jafngilda um það bil 17 milljónum króna í laun borgarstjóra Reykjavíkur.