Sýni úr leðurblökunni sem fannst í Hlíðunum í Reykjavík á þriðjudaginn verður sent til Svíþjóðar til greiningar í næstu viku. Athuga á hvort blakan hafi verið smituð af hundaæði eða SARS-veiru, áður en frekari rannsóknir á henni fara fram.
RÚV segir frá því að sýni úr leðurblökunni sem var nöppuð í Hlíðunum í Reykjavík á þriðjudaginn og aflífuð, verði sent til Svíþjóðar þar sem rannsakað verður hvort hún sé smitberi. Eins og sakir standa er leðurblakan geymd í frysti á rannsóknarstofunni að Keldum.
„Aðallega er verið að athuga hvort hún sé með SARS-veiru úr kórónuveirufjölskyldunni eða hundaæði,“ segir Stefán Ragnar Jónsson, sameindalíffræðingur á Keldum í samtali við RÚV.
Tegund leðurblökunnar hefur ekki verið greind ennþá en til eru yfir 1400 tegundir af leðurblökum í heiminum. Segir Stefán Ragnar þó eitt og annað benda til þess að blakan sé ekki af þeirri tegund sem rati vanalega til Íslands.
„Þessi virðist aðeins stærri en þessar sem hafa borist hingað áður sem hafa verið evrópskar og eru litlar. Þessi virðist vera með um 25 sentimetra vænghaf,“ segir Stefán Ragnar. Til greina kemur að Náttúrufræðistofnun greini tegund leðurblökunnar en um leið og það verður komið á hreint, verður hægt að sjá hvaðan líklegast er að hún hafi komið.
Reynist leðurblakan smituð af annað hvort hundaæði eða SARS-veiru veður hún sennilega brennd án þess að frekari rannsóknir verðir gerðar á henni.