Drukknir samfélagsþegnar voru til vandræða í nótt. Lögregla var kölluð út á hótel í miðbænum þar sem einn gestanna var ofurölvi og neitaði að fara til herbergis. Tilkynnt var um umferðaróhapp á sömu slóðum. Annar ökumanna var handtekinn og hann vistaður í fangaklefa. Maðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis. Lítið tjón var á bifreiðum en engin meiðsli á fólki. Annar var vistaður í fangageymslum, grunaður um líkamsárás. Hann neitaði að gefa upp nafn sitt. Þá ræddi lögreglan við ökumann í Laugardal en hann er grunaður um ólöglega sölu áfengis eftir að mikið magn þess fannst í bifreiðinni.
Leigubílstjóri leitaði aðstoðar lögreglu þegar hann lenti í vandræðum með viðskiptavin sem tjónaði leigubilinn eftir að komið var á áfangastað, með því að sparka í hann. Nokkrir voru handteknir fyrir líkamsárásir og akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna