- Auglýsing -
Héraðssaksóknari hefur sent fjölmiðlum tilkynningu um leit að manni:
Héraðssaksóknari óskar eftir að ná tali af einstaklingi sem sjá má á meðfylgjandi myndum vegna máls sem er til rannsóknar. Viðkomandi má hafa samband við héraðssaksóknara að Skúlagötu 17 í Reykjavík í síma 444 0150 eða 8954972.
Ef einhverjir þekkja til viðkomandi, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu einnig beðnir um að hringja í héraðssaksóknara. Upplýsingum má koma á framfæri í tölvupósti á netfangið [email protected].