Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, birti furðulega mynd af Bjarna Benediktssyni.
Það hefur stundum verið sagt að Sjálfstæðisflokkurinn eigi það til að sýna foringjadýrkun sem eigi ekki heima í stjórnmálum á 21. öldinni en Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, virðist vera ósammála því. Í kjölfar þess að Bjarni sagði af sér sem fjármálaráðherra eftir að hafa verið álitinn óhæfur til að samþykkja sölu Íslandsbanka af Umboðsmanni Alþingis birti Elliði mynd af Bjarna þar sem honum er stillt upp sem ofurhetju. Þá sagði hann að „Enn og aftur sýnir Bjarni Ben hversu öflugur stjórnmálamaður hann er. Hann sá sóknarfæri fyrir flokkinn og nýtti það.“
Þá sagði Elliði að Bjarni hefði sagt af sér af virðingu og auðmýkt